Fjölsmiðjan 25 ára

Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu 25 ára.
Um þessar mundir eru 25 ár frá stofnun Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Okkar megin hlutverk er að undirbúa nemana fyrir nám og eða vinnu. Við höfum þróast og í dag erum við viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili, sem sagt við getum m.a. boðið upp á einingabært nám. Við rekum 5 deildir (auk fræðsludeildar) sem allar takast á við raunveruleg verkefni sem við þurfum að skila af okkur á réttum tíma og uppfylla ákveðin gæði. Þannig undirbúum við m.a. nemana fyrir vinnu og nám.
Í dag erum við að styðja við um 100 nema, hluti af þeim um 20 manns eru í námi utan Fjölsmiðjunnar sem við fylgjum eftir í 3 annir, meðal annars til að koma í veg fyrir brottfall úr skóla, aðrir eru að sækja daglega virkni í Fjölsmiðjunni.
Með fram vinnu / virkni í Fjölsmiðjunni þá kennum við grunnnám í ísl. og stærðfræði fyrir þá sem það þurfa til að styrkja umsókn þeirra í framhaldsskóla.
Að auki bjóðum við upp á einingabær lífsleikninámskeið, íslenskukennslu fyrir erlenda nema og aðlögun að íslensku samfélagi í frábæru samstarfi við Framvegis símenntunarmiðstöð. Einnig er þróun á nýrri útfærslu á íslenskukennslu fyrir einstaklinga af erlendum uppruna í Fjölsmiðjunni í samstarfi við Framvegis símenntunarmiðstöð. Það verkefni er stutt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Fjölsmiðjan er í nánu samstarfi við öll velferðarsviðin á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að auka vellíðan nema Fjölsmiðjunnar. Og sömuleiðis erum við í reglubundnu samstarfi við mismunandi opinbera eða einkarekinna aðila á höfuðborgarsvæðinu.
Rauði krossinn átti frumkvæðið að stofnun Fjölsmiðjunnar á sínum tíma. Ásgeir Jóhannesson frumkvöðull var einn af upphafsmönnum Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu og fyrsti formaður hennar.
Upplýsingar um brottfall úr skóla voru víst ekki svo opinberar á þessum árum og það þurfti aðstoð Hagstofunnar til að finna það út að brottfall úr skólum fyrir rúmum 25 árum síðan var um 40 %.
Þessar staðreyndir ýttu m.a. undir stofnun Fjölsmiðjunnar.
Rauði krossinn leitaði eftir hugmyndum að úrræði fyrir aldurshópinn 16- 24 ára. Árið 1997 var Ásgeir í einkaerindum á ferðalagi í Kaupmannahöfn og kynnti sér m.a. kvennasmiðju með Rauða krossinn í huga. Þar rekst hann á bækling um “ Produktion “ skóla í Danmörku sem hann hreifst af, sem varð svo fyrirmyndin að stofnun Fjölsmiðjunnar fjórum árum seinna.
Nafnið var keypt af fyrirtæki út í bæ sem var í raun hætt starfsemi, fyrir 10 þ.kr. Nafnið Fjölsmiðjan á að tákna það sem margt er í boði.
Kristján Guðmundsson fyrrverandi félagsmálastjóri og bæjarstjóri Kópavogs var ráðinn verkefnisstjóri á undirbúningsstigi Fjölsmiðjunnar. Þorbjörn Jensson fyrrverandi forstöðumaður hennar leiddi svo starfsemina samfellt í 17 farsæl ár og tók Sturlaugur Sturlaugsson við forstöðumannasætinu árið 2018 og er enn starfandi.
Takk fyrir frumkvæðið og eldmóðinn Ásgeir Jóhannesson og annað hugsjónafólk sem stuðlaði að stofnun Fjölsmiðjunnar.

Myndin er af Ásgeiri J.

Í stjórn Fjölsmiðjunnar í dag eru fulltrúar frá SSH, Reykjavíkurborg, Félagsmálaráðuneytinu, VMST. og Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þau eru Guðný Riba formaður, Margrét L. Ásgrímsdóttir varaformaður, Hulda A. Arnljótsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Gissur Pétursson.

Starfsmenn Fjölsmiðjunnar eru 11.

Veitingasala lokuð 9-11 mars

Hæ öllsömul, við verðum því miður að loka veitingasölunni okkar fyrir gestum 9. og 10. og 11. mars. Að öllu óbreyttu opnum við aftur fyrir gesti fimmtudaginn 12. mars í næsti viku.

Skemmtilegan fyrirlestur um gervigreind fyrir starfsfólk

🤖Fjalar Sigurðarson kom til okkar í Fjölsmiðjuna og hélt fræðandi, lifandi og skemmtilegan fyrirlestur um gervigreind fyrir starfsfólk.

Hann fór yfir hvernig hægt er að nýta gervigreind með nemum til að auðvelda starfið og gera það skilvirkara.

Einnig hvernig hægt er að leika sér með hana og nýta í daglegu lífi. Farið var yfir notkun algengustu gervigreindartólanna með áherslu á ChatGPT frá OpenAI, Gemini frá Google og Grok frá X. Einnig voru sýnd dæmi um notkun á app-útgáfum þessara tóla í síma.

Óhætt er að segja að þetta hafi kveikt neista og komið hugmyndafluginu á fullt.

Undanfarin ár höfum við séð um merkingar á vörum sem eru ætlaðar þeim allra mikilvægustu — börnunum.
Við höfum tekið að okkur að merkja Nan ungbarnamjólk frá Danól með íslenskum leiðbeiningum og þar skiptir miklu máli að vanda til verka og merkja rétt með númerinu 1 eða 2 eftir því sem við á.
Við leggjum mikla áherslu á vandvirkni og sinna öllum verkefnum sem við fáum að nákvæmni. Við erum þakklát fyrir öll þau verkefni sem við erum með og höfum fengið, erum þó alltaf á höttunum eftir fleiri verkefnum og erum opin fyrir allskyns samstarfi.

Sumarlokun Fjölsmiðjunnar

Góðan dag

Fjölsmiðjan er lokuð frá 30 júní til 6. ágúst.

Hafið það sem allra best í sumarfríinu.

 

Kveðja

Starfsfólk Fjölsmiðjunnar

Ársfundur Fjölsmiðjunnar- 6.júní

Ársfundur Fjölsmiðjunnar fyrir árið 2024 var haldinn 6. Júní.
Í stjórn Fjölsmiðjunnar voru tilnefnd :
Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Rvíkurborgar og til vara Sigurbjörg Fjölnisdóttir.
Guðný Maja Ríba frá Rvíkurborg.
Margrét Linda Ásgrímsdóttir frá VMST. og Anna G. Norðfjörð til vara.
Hulda A. Arnljótsdóttir frá Mennta- og barnam.r.
Gissur Pétursson frá Velferðarráðuneytinu.
Á síðasta ári voru 170 nemar skráðir í Fjölsmiðjuna, þeim hefur fjölgað um 60% frá árinu 2020.
Alls útskrifuðust 68 nemar á árinu 2024 og um 64% af þeim fóru í vinnu, atvinnuleit eða nám.
Afkoman var jákvæð um 12 m.kr. Heildartekjur voru 220 m.kr. og framlegð deilda 30 m.kr. uppí fastan kostnað Fjölsmiðjunnar sem er heldur betra en frá fyrra ári.
Búið er að semja við helstu stuðningsaðila Fjölsmiðjunnar þ.e. VMST. til 2ja ára, SSH til 5 ára og Mennta- og barnam.r. til 3ja ára.
Ársskýrslu fyrir árið 2024 og Starfs- og rekstraráætlun fyrir árið 2025 er hægt að nálgast á heimasíðu fjolsmidjan.is undir opinber gögn.
Fjölsmiðjan vill þakka fráfarandi stjórnarmönnum fyrir samstarfið og stuðninginn.
Á myndunum má sjá Sigurbjörgu F. fara yfir skýrslu stjórnar og Heiðu K. H. og Sturlaug Sturlaugsson að kynna starfsemi Fjölsmiðjunnar.

Ársfundur Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu

Ársfundur Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2024 verður haldinn 6. Júní 2025 kl. 13.00 í Fjölsmiðjunni Víkurhvarfi 2 Kópavogi. Dagskrá : Skýrsla stjórnar. Sigurbjörg Fjölnisdóttir formaður. Ársreikningur fyrir árið 2024. Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður. Tilnefningar í stjórn frá hagsmunaaðilum Fjölsmiðjunnar. Önnur mál : Staðan í dag og helstu áherslur í starfsemi Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sturlaugur Sturlaugsson […]

Vegvísi um starfsval – Örnámskeið

Miðvikudaginn 18.september verður örnámskeið hjá okkur í Fjölsmiðjunni í samstarfi við RightNow ehf.

Skráning fer fram á fjolsmidjan@fjolsmidjan.is.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Ársfundur Fjölsmiðjunnar fyrir árið 2023.

Góðan daginn.

 

Ársfundur Fjölsmiðjunnar fyrir árið 2023 verður haldinn föstudaginn 31. maí kl. 1500 í Fjölsmiðjunni á höfuðborgarsvæðinu Víkurhvarfi 2 Kópavogi.

 

Dagskrá :

 

Skýrsla stjórnar, Ellen J. Calmon formaður.

 

Farið yfir ársreikninginn fyrir árið 2023, Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður

 

Tilnefningar í stjórn.

Stjórnin skiptir svo með sér verkum og kýs formann og varaformann.

 

Önnur mál.

  • Staðan í dag og helstu áherslur í starfseminni. Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður og Heiða K. Harðardóttir náms- og starfsráðgjafi.
  • Umræður

Vöfflukaffi í boði.

 

Fyrir hönd stjórnar.

 

Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður.

 

Aðstoðarkokkur/matráður


Aðstoðarkokkur/matráður
Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu, Víkurhvarf 2 sem er virkniúrræði fyrir einstaklinga á aldrinum 16 – 24 ára vantar aðstoðarkokk sem fyrst. Starfshlutfallið getur verið samningsatriði en a.m.k. 50 %. Venjulegur vinnutími starfsmanna í Fjölsmiðjunni á höfuðborgarsvæðinu er frá 08.00-15.30 alla virka daga nema föstudaga frá kl. 08.00-14.00, engin helgarvinna.

Hæfniskröfur og almennar upplýsingar.

Viðkomandi þarf helst að hafa lokið námi í matreiðslu, matráður eða matreiðslumaður og kunna íslensku. Kostur að hafa þokkalegan grunn í ensku og spænsku. Lögð er áhersla á góð mannleg samskipti.

Starfið felst m.a. í því að viðkomandi þarf að geta leyst matreiðslumeistara Fjölsmiðjunnar af og taka þátt í því að leiðbeina nemum Fjölsmiðjunnar við matargerð og við frágang/ undirbúning i veitingasal/eldhúsi Fjölsmiðjunnar og vera hvetjandi í daglegu starfi.

Nemar Fjölsmiðjunnar og starfsmenn fá morgun- og hádegismat 4 daga vikunnar og brunch á föstudögum. Hádegismatur er í boði fyrir utanaðkomandi gesti 4 daga vikunnar, alla virka daga nema föstudaga. Eldað er fyrir um 100 manns á degi hverjum.

Fjölsmiðjan er gefandi en krefjandi vinnustaður. Aðalhlutverk okkar er að undirbúa nemana fyrir nám og vinnu með áherslu á vellíðan þeirra.

Nánari upplýsingar má finna á fjolsmidjan.is og á facebook undir Fjölsmiðjan höfuðborgarsvæðinu sími 5444080, netfang hjá forstöðumanni er Sturlaugur@fjolsmidjan.is.