• Shopping Cart Shopping Cart
    0Shopping Cart
Fjölsmiðjan
  • Til sölu
    • Handverk
      • Ullarvörur
      • Textíll
        • Bolir
        • Prjón
      • Skart
        • Origami-eyrnalokkar
        • Eyrnalokkar
        • Armbönd
        • Hringaprjónuð armbönd
        • Hengiskraut
      • Kerti
      • skrautvara
      • Fyrir börn
    • Tölvur og tæki.
      • Fartölvur
      • Smátölvur
    • Gjafabréf
  • Deildir
    • Handverksdeild
    • Trésmíðadeild
    • Veitingadeild
    • Tæknideild
    • Bíladeild
    • Fræðslu- og lífsleiknideild
  • Fyrirtæki
  • Stuðningur
    • Náms- og starfsráðgjöf
    • Námsleiðir og störf
    • Námstækni og tímastjórnun
    • Forvarnir og fræðsla
  • Um okkur
    • Fréttir
    • Opinber gögn
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Hafa samband
    • Sækja um
  • Tenglar
  • English
  • Menu Menu
  • Link to Facebook

Samstarfsamningur Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu við framhaldsskóla um einingabært nám.

15. janúar, 2021/in Fréttir


Í dag föstudaginn 15. janúar var samstarfssamningur Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu, Borgarholtsskóla, Fjölbrautarskólans við Ármúla, Fjölbrautarskólans í Breiðholti og Tækniskólans undirritaður í húsnæði Fjölsmiðjunnar, Víkurhvarfi 2 Kópavogi.
Undir samstarfssamninginn rituðu Ellen Calmon forman stjórnar Fjölsmiðjunnar, Hjördís Bára Gestsdóttir verkefnisstýra Fjölsmiðjunnar, Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla, Magnús Ingvason skólameistari Fjölbrautarskólans við Ármúla, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari Fjölbrautarskólans í Breiðholti og Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans.

Þann 7. september sl. hlaut Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu viðurkenningu frá Menntamálastofnun sem framhaldsfræðsluaðili á 1. þrepi. Þessi viðurkenning hefur mikla þýðingu fyrir starfsemi og nema Fjölsmiðjunnar þar sem nemar fá aukin tækifæri til náms í Fjölsmiðjunni sem metið verður til framhaldsskólaeininga. Þá er þetta ekki síður viðurkenning á þeirri þróun á faglegu starfi Fjölsmiðjunnar sem hefur átt sér stað á síðastliðnum árum.
Samstarfssamningurinn hljóðar upp á að nemar Fjölsmiðjunnar geta nú sótt einingabært nám á 1. þrepi í samstarfsskólunum. Í fyrstu verður boðið upp á nám í tveimur áföngum í íslensku, tveimur áföngum í stærðfræði og tveimur áföngum í lífsleikni. Einingarnar sem nemarnir ljúka eru svo metnar að fullu til áframhaldandi náms ef vill.
Fjölsmiðjan er sjálfseignarstofnun og á 20 ára farsæla sögu á þessu ári. Hún sinnir mikilvægu hlutverki hvað varðar félags- og virkniúrræði fyrir ungmenni. Byggt er á góðu samstarfi við atvinnulífið, félagsþjónustu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Vinnumálastofnun, framhaldsskóla, félagsmálaráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og aðra aðila sem vinna að mál-efnum ungs fólks. Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk með náms- og starfsendurhæfingu að augnmiði. Áhersla er lögð á að styrkja félagslega færni, efla einstaklinga í persónulegum vexti og þroska námsgetu þannig að þeir séu betur undirbúnir til þátttöku á almennum vinnumarkaði eða frekara náms. Nemar Fjölsmiðjunnar eru flestir á aldrinum 16-24 ára en þá eru einnig einhverjir eldri nemar.

Nánari upplýsingar veitir Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar í síma 8960162. ( www.fjolsmidjan.is.)

https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png 0 0 Sturlaugur Sturlaugsson https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png Sturlaugur Sturlaugsson2021-01-15 14:47:202021-01-15 14:50:36Samstarfsamningur Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu við framhaldsskóla um einingabært nám.

Archive

  • júní 2026
  • mars 2026
  • febrúar 2026
  • júní 2025
  • september 2024
  • ágúst 2024
  • maí 2024
  • febrúar 2024
  • október 2022
  • júní 2022
  • janúar 2022
  • desember 2021
  • nóvember 2021
  • júní 2021
  • apríl 2021
  • mars 2021
  • janúar 2021
  • desember 2020
  • nóvember 2020
  • október 2020
  • september 2020
  • ágúst 2020
  • maí 2020

Categories

  • Fréttir
  • Óflokkað

Facebook

Instagram

No images available at the moment

Follow Me!

Um Fjölsmiðjuna

Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk. Markmiðið er að undirbúa nema Fjölsmiðjunnar fyrir frekara nám og/eða vinnu.

Áhersla er lögð á að styrkja félagslega færni og þroska námsgetu. Nemar sem hafa fengið þjálfun hjá Fjölsmiðjunni fara flestir í vinnu á almennum vinnumarkaði eða hefja nám.

Hvar erum við?

Fjölsmiðjan
Víkurhvarfi 2
203 Kópavogi
Sími: 544-4080 og 896-0162
fjolsmidjan@fjolsmidjan.is

Skrifstofutímar

Mán.- fim : 8:00 – 15:30
Fös : 8:00 – 13:00

Alltaf er hægt að hafa samband í síma 896-0162 (Sturlaugur) ef nauðsyn krefur.

© Copyright - Fjölsmiðjan
  • Link to Facebook
Scroll to top Scroll to top Scroll to top