• Shopping Cart Shopping Cart
    0Shopping Cart
Fjölsmiðjan
  • Til sölu
    • Handverk
      • Ullarvörur
      • Textíll
        • Bolir
        • Prjón
      • Skart
        • Origami-eyrnalokkar
        • Eyrnalokkar
        • Armbönd
        • Hringaprjónuð armbönd
        • Hengiskraut
      • Kerti
      • skrautvara
      • Fyrir börn
    • Tölvur og tæki.
      • Fartölvur
      • Smátölvur
    • Gjafabréf
  • Deildir
    • Handverksdeild
    • Trésmíðadeild
    • Veitingadeild
    • Tæknideild
    • Bíladeild
    • Fræðslu- og lífsleiknideild
  • Fyrirtæki
  • Stuðningur
    • Náms- og starfsráðgjöf
    • Námsleiðir og störf
    • Námstækni og tímastjórnun
    • Forvarnir og fræðsla
  • Um okkur
    • Fréttir
    • Opinber gögn
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Hafa samband
    • Sækja um
  • Tenglar
  • English
  • Menu Menu
  • Link to Facebook

Stofnun Hollvinafélags Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu.

17. nóvember, 2020/in Fréttir


Kæru vinir og stuðningsmenn Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Fjölsmiðjan er sjálfseignarstofnun sem sinnir því mikilvæga hlutverki að veita félagsleg úrræði fyrir ungt fólk, þar sem blandað er saman vinnuúrræði, fræðslu, sköpun, lífsleikni og hreyfingu. Við styðjumst m.a. við Fimm leiðir að vellíðan skv. leiðbeiningum frá Landlækni.
Nú leitum við að áhugasömu fólki til að koma að stofnun Hollvinafélags Fjölsmiðjunnar. Það væri afskaplega gott að vita af hópi stuðningsmanna sem hefði það hlutverk að styðja við starfsemi Fjölsmiðjunnar á ýmsan hátt, oft er þörf en nú er nauðsyn.
Þegar samdráttur verður í atvinnulífinu og atvinnuleysi eykst eins og nú þá verður erfiðara að fá verkefni fyrir nemana og fjármagn fyrir starfsemina. En á sama tíma er aldrei meiri þörf fyrir úrræði Fjölsmiðjunnar.
Við viljum efla bakland Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir einstaklingar geta haft samband við Sturlaug forstöðumann, sturlaugur@fjolsmidjan.is eða í síma 5444080/ 8960162.
Með bestu kveðju,
Sturlaugur

https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png 0 0 Sturlaugur Sturlaugsson https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png Sturlaugur Sturlaugsson2020-11-17 13:26:012020-11-17 13:26:04Stofnun Hollvinafélags Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Velferðarsjóður barna styður Fjölsmiðjuna á höfuðborgarsvæðinu.

13. nóvember, 2020/in Fréttir

Stjórn Velferðarsjóðs barna samþykkti á fundi sínum í gær þann 12. nóv. 2020 að veita Fjölsmiðjunni kr. 1.000.000 í styrk. Hann er hugsaður m.a. sem stuðningur við aukið fræðslustarf Fjölsmiðjunnar fyrir aldurshópinn 16- 18 ára.
Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu hlaut nýverið viðurkenningu sem viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili frá Menntamálastofnun. Framlag Velferðarsjóðs barna er því mjög mikilvægt fyrir nema og starfsmenn Fjölsmiðjunnar. Við erum afskaplega þakklát….:)

https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png 0 0 Sturlaugur Sturlaugsson https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png Sturlaugur Sturlaugsson2020-11-13 12:29:422020-11-13 12:29:44Velferðarsjóður barna styður Fjölsmiðjuna á höfuðborgarsvæðinu.

Samstarfssamningur við Upplýsingaþjónustu Reykjavíkur.

10. nóvember, 2020/in Fréttir, Óflokkað

Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu, kt. 660601-2790 (Fjölsmiðjan) og Upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkur, kt. 530269-7609 (UTR) skrifuðu undir samstarfssamning í dag. Samkomulagið er liður í því að þróa tæknideild Fjölsmiðjunnar. Upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkurborgar ( UTR ) veitir fjölbreytta þjónustu við notendur og starfseiningar þvert á svið borgarinnar og annast umfangsmikinn miðlægan rekstur tölvukerfa og viðhald fjölmargra upplýsingakerfa.

Samkomulagið er m.a. um búnað sem UTR. afhendir Fjölsmiðjunni og tengist ferlum sem snúa að förgun búnaðar eða endurnýtingu hans og verkefnavinnu. Við í Fjölsmiðjunni hlökkum til að takast á við þetta verkefni og þróa ennfrekar.

https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png 0 0 Sturlaugur Sturlaugsson https://fjolsmidjan.is/wp-content/uploads/2020/09/fjolsmidjan_logo.png Sturlaugur Sturlaugsson2020-11-10 14:06:522020-11-10 14:09:46Samstarfssamningur við Upplýsingaþjónustu Reykjavíkur.

Archive

  • júní 2026
  • mars 2026
  • febrúar 2026
  • júní 2025
  • september 2024
  • ágúst 2024
  • maí 2024
  • febrúar 2024
  • október 2022
  • júní 2022
  • janúar 2022
  • desember 2021
  • nóvember 2021
  • júní 2021
  • apríl 2021
  • mars 2021
  • janúar 2021
  • desember 2020
  • nóvember 2020
  • október 2020
  • september 2020
  • ágúst 2020
  • maí 2020

Categories

  • Fréttir
  • Óflokkað

Facebook

Instagram

No images available at the moment

Follow Me!

Um Fjölsmiðjuna

Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk. Markmiðið er að undirbúa nema Fjölsmiðjunnar fyrir frekara nám og/eða vinnu.

Áhersla er lögð á að styrkja félagslega færni og þroska námsgetu. Nemar sem hafa fengið þjálfun hjá Fjölsmiðjunni fara flestir í vinnu á almennum vinnumarkaði eða hefja nám.

Hvar erum við?

Fjölsmiðjan
Víkurhvarfi 2
203 Kópavogi
Sími: 544-4080 og 896-0162
fjolsmidjan@fjolsmidjan.is

Skrifstofutímar

Mán.- fim : 8:00 – 15:30
Fös : 8:00 – 13:00

Alltaf er hægt að hafa samband í síma 896-0162 (Sturlaugur) ef nauðsyn krefur.

© Copyright - Fjölsmiðjan
  • Link to Facebook
Scroll to top Scroll to top Scroll to top