Ársfundur Fjölsmiðjunnar fyrir árið 2023.
Góðan daginn.
Ársfundur Fjölsmiðjunnar fyrir árið 2023 verður haldinn föstudaginn 31. maí kl. 1500 í Fjölsmiðjunni á höfuðborgarsvæðinu Víkurhvarfi 2 Kópavogi.
Dagskrá :
Skýrsla stjórnar, Ellen J. Calmon formaður.
Farið yfir ársreikninginn fyrir árið 2023, Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður
Tilnefningar í stjórn.
Stjórnin skiptir svo með sér verkum og kýs formann og varaformann.
Önnur mál.
- Staðan í dag og helstu áherslur í starfseminni. Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður og Heiða K. Harðardóttir náms- og starfsráðgjafi.
- Umræður
Vöfflukaffi í boði.
Fyrir hönd stjórnar.
Sturlaugur Sturlaugsson forstöðumaður.