LOKAÐ ENN UM SINN!
Kæru nemar Fjölsmiðjunnar,
Í ljósi nýjustu frétta stjórnvalda og hvatningu sóttvarnarlæknis þá höfum við tekið þá ákvörðun að seinka enn frekar komu ykkar til starfa í Fjölsmiðjuna.
Þið mætið því ekki til starfa á morgun þriðjudaginn 20. október né miðvikudaginn 21. október.
Við munum taka stöðuna að nýju á miðvikudaginn kemur þann 21. október, þá fá allir sendan tölvupóst með upplýsingum varðandi framhaldið.
Fylgist líka vel með á Facebook síðu Fjölsmiðjunnar (Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu).
Hlúið að ykkur sjálfum og hvort öðru, við erum öll almannavarnir !!
Góðar kveðjur og við hlökkum til að sjá ykkur fljótlega,
Starfsfólk Fjölsmiðjunnar