Fjölsmiðjan 25 ára

Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu 25 ára.
Um þessar mundir eru 25 ár frá stofnun Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Okkar megin hlutverk er að undirbúa nemana fyrir nám og eða vinnu. Við höfum þróast og í dag erum við viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili, sem sagt við getum m.a. boðið upp á einingabært nám. Við rekum 5 deildir (auk fræðsludeildar) sem allar takast á við raunveruleg verkefni sem við þurfum að skila af okkur á réttum tíma og uppfylla ákveðin gæði. Þannig undirbúum við m.a. nemana fyrir vinnu og nám.
Í dag erum við að styðja við um 100 nema, hluti af þeim um 20 manns eru í námi utan Fjölsmiðjunnar sem við fylgjum eftir í 3 annir, meðal annars til að koma í veg fyrir brottfall úr skóla, aðrir eru að sækja daglega virkni í Fjölsmiðjunni.
Með fram vinnu / virkni í Fjölsmiðjunni þá kennum við grunnnám í ísl. og stærðfræði fyrir þá sem það þurfa til að styrkja umsókn þeirra í framhaldsskóla.
Að auki bjóðum við upp á einingabær lífsleikninámskeið, íslenskukennslu fyrir erlenda nema og aðlögun að íslensku samfélagi í frábæru samstarfi við Framvegis símenntunarmiðstöð. Einnig er þróun á nýrri útfærslu á íslenskukennslu fyrir einstaklinga af erlendum uppruna í Fjölsmiðjunni í samstarfi við Framvegis símenntunarmiðstöð. Það verkefni er stutt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Fjölsmiðjan er í nánu samstarfi við öll velferðarsviðin á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að auka vellíðan nema Fjölsmiðjunnar. Og sömuleiðis erum við í reglubundnu samstarfi við mismunandi opinbera eða einkarekinna aðila á höfuðborgarsvæðinu.
Rauði krossinn átti frumkvæðið að stofnun Fjölsmiðjunnar á sínum tíma. Ásgeir Jóhannesson frumkvöðull var einn af upphafsmönnum Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu og fyrsti formaður hennar.
Upplýsingar um brottfall úr skóla voru víst ekki svo opinberar á þessum árum og það þurfti aðstoð Hagstofunnar til að finna það út að brottfall úr skólum fyrir rúmum 25 árum síðan var um 40 %.
Þessar staðreyndir ýttu m.a. undir stofnun Fjölsmiðjunnar.
Rauði krossinn leitaði eftir hugmyndum að úrræði fyrir aldurshópinn 16- 24 ára. Árið 1997 var Ásgeir í einkaerindum á ferðalagi í Kaupmannahöfn og kynnti sér m.a. kvennasmiðju með Rauða krossinn í huga. Þar rekst hann á bækling um “ Produktion “ skóla í Danmörku sem hann hreifst af, sem varð svo fyrirmyndin að stofnun Fjölsmiðjunnar fjórum árum seinna.
Nafnið var keypt af fyrirtæki út í bæ sem var í raun hætt starfsemi, fyrir 10 þ.kr. Nafnið Fjölsmiðjan á að tákna það sem margt er í boði.
Kristján Guðmundsson fyrrverandi félagsmálastjóri og bæjarstjóri Kópavogs var ráðinn verkefnisstjóri á undirbúningsstigi Fjölsmiðjunnar. Þorbjörn Jensson fyrrverandi forstöðumaður hennar leiddi svo starfsemina samfellt í 17 farsæl ár og tók Sturlaugur Sturlaugsson við forstöðumannasætinu árið 2018 og er enn starfandi.
Takk fyrir frumkvæðið og eldmóðinn Ásgeir Jóhannesson og annað hugsjónafólk sem stuðlaði að stofnun Fjölsmiðjunnar.

Myndin er af Ásgeiri J.

Í stjórn Fjölsmiðjunnar í dag eru fulltrúar frá SSH, Reykjavíkurborg, Félagsmálaráðuneytinu, VMST. og Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þau eru Guðný Riba formaður, Margrét L. Ásgrímsdóttir varaformaður, Hulda A. Arnljótsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Gissur Pétursson.

Starfsmenn Fjölsmiðjunnar eru 11.