Handverksdeild

Handverks- og pökkunardeildin tekur að sér fjölbreytt verkefni fyrir hina ýmsu aðila. Einnig fá nemar aðstoð og leiðbeiningar við handverk og búa til vörur sem eru til sölu hjá okkur.

Trésmíðadeild

Verk­efnin undan­farin ár hafa byggst á bretta­smíði og smíði á harð­viðar­kubbum fyrir Norður­ál á Grundar­tanga auk til­fall­andi smíða­vinnu eins gerð duftkera og kistuloka.

Veitingadeild

Nemar Fjölsmiðjunnar sinna öllum störfum sem tilheyra veitingadeildinni.  Starfsmenn og nemar Fjölsmiðjunnar borða þar morgunverð og hádegisverð auk þess sem almenningur getur keypt máltíð og borðað í matsal Fjölsmiðjunnar mánudaga til fimmtudaga frá kl. 11.30-13.00.

Tæknideild

Fjölsmiðjan sérhæfir sig í móttöku á tölvubúnaði og úrvinnslu á þeim með sérstaka áherslu á endurnýtingu búnaðar. Hægt er að kaupa notaðan búnað eins og tölvur, skjái og viðeigandi snúrur og allskonar búnað á mjög svo viðráðanlegu verði. Oft eru góð tilboð á lagersölu Fjölsmiðjunnar á Facebook.

Einnig erum leigjum við út búnað t.d í sjónvarps- og kvikmyndaverkefni.

Bíladeild

Starfsfólk bíladeildarinnar sér meðal annars um þvott, bón og alhliða þrif á bifreiðum, t.d djúphreinsun á sætum og teppum.

Fræðslu og lífsleiknideild

Einstaklingsmiðuð fræðsla í samráði við aðra starfsmenn Fjölsmiðjunnar með því að samþætta vinnuúrræði, fræðslu, sköpun, hreyfingu og lífsleikni.