Listin að lifa.
Við erum fjölbreyttur hópur í Fjölsmiðjunni með mismunandi þarfir.
Stuðningur við nema Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur víða að. Í dag 15. sept. byrjar m.a. 8 vikna námskeiðið Líf og Heilsa með stuðningi Framvegis símenntunarmiðstöð þar sem amk. 10 sérfræðingar koma að fræðslunni/ kennslunni. Námskeiðið er einingabært.
Hvert og eitt okkar tökum tugþúsundir ákvarðanir pr. dag skv. rannsóknum. M.a. þess vegna er fjallað um þætti á námskeiðinu eins og félagslega heilsu, næringu, hreyfingu, samskipti, jákvæðni, þakklæti, tilfinningar, leiðir að bættri líðan, fíkn o.fl.
Í þeim tilgangi að fjölga daglegum farsælum ákvörðunum okkar.
Þann 5. okt. byrjar námskeiðið Tæknilæsi og tölvufærni.
Auk þess erum við að kenna fyrsta þrep stærðfræði og ísl. fyrir þá sem það þurfa til að komast í framhaldsskóla.
Svo erum við að byrja á spennandi ísl. kennslu fyrir einstaklinga af erlendum uppruna í okt. þar sem kennslan mun í meira mæli fara fram út í verkdeildum. Það er sömuleiðis í samstarfi við frábært starfsfólk hjá Farmvegis símenntunarstöð.
Fjölsmiðjan skapar tækifæri en það er nemanna að grípa það og nýta til að efla sig m.a. til að takast á við frekara nám og eða vinnu í framtíðinni.
Samhliða námi / fræðslu þá höfum við verk að vinna út í deildum sem við þurfum af skila okkur í réttum gæðum og á réttum tíma. Það fylgir töluverð ábyrgð að starfa og fræðast í Fjölsmiðjunni á höfuðborgarsvæðinu.
Með von um farsælan og góðan dag öllsömul…